Deprecated: Function WP_Dependencies->add_data() was called with an argument that is deprecated since version 6.9.0! IE conditional comments are ignored by all supported browsers. in /var/www/virtual/senzus.is/htdocs/wp-includes/functions.php on line 6131
Sköpum rými fyrir nýsköpun -

Sköpum rými fyrir nýsköpun

Í dagsins önn getur það verið áskorun fyrir stjórnendur og starfsfólk að staldra við og huga að nýjum tækifærum og lausnum. Tímaskortur, vinnuálag og óraunhæfar kröfur stjórnenda getur orðið til þess að vinnustaðir sitji eftir, missi samkeppnisforskot sitt og aðlögunarhæfni.

Hvernig geta stjórnendur skapað rými fyrir nýsköpun og valdeflt starfsfólk þar sem traust, sjálfstæði og skilningur ríkir?

Rannsóknir styðja við þessar fullyrðingar. Þær sýna að stjórnendur hafa áhrif á allt að 70% af þátttöku starfsmanna, sem er lykilþáttur í framleiðni og nýsköpun (Gallup, 2023). Samkvæmt Deloitte velja 78% Generation Y kynslóðarinnar (fólk fætt 1981- 1996) vinnustaði sem rækta nýsköpun, og fyrirtæki sem byggja upp fjölbreytt og valdeflandi teymi njóta að meðaltali 19% hærri tekna. Þar að auki eru starfsmenn sem upplifa að rödd þeirra sé virt 4,6 sinnum líklegri til að skara fram úr (Salesforce, 2022).

Að skapa rými fyrir nýsköpun snýst um meira en að samþykkja hugmyndir—það snýst um að byggja menningu innan vinnustaðarins sem nærir þær. Þegar stjórnendur veita starfsfólki tíma, traust og sálrænt öryggi til að prófa nýjar hugmyndir, verða áskoranir að tækifærum og sköpunargáfan fær að blómstra.

Ég mæli með því að hlusta á þennan þátt Brené Brown, prófessor við Háskólann í Houston og höfundur bókarinnar Daring Greatly talar um hugrekki í að leiða sem stjórnandi. Hlusta má á þáttinn hér: The Heart of Daring Leadership – Brené Brown

Ert þú með áskorun sem gæti orðið að tækifæri? Senzus býður upp á vinnustofur með það að markmiði að greina áskoranir og koma á auga á tækifæri.

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Scroll to Top