Deprecated: Function WP_Dependencies->add_data() was called with an argument that is deprecated since version 6.9.0! IE conditional comments are ignored by all supported browsers. in /var/www/virtual/senzus.is/htdocs/wp-includes/functions.php on line 6131
Um Senzus -

Um Senzus

Gerum þetta saman!


Hæ! Ég heiti Kolbrún Kristín Karlsdóttir og er stafrænn ráðgjafi. Já, en hvað þýðir það og hef ég leyfi til að kalla mig slíkan?

Ég er allavega með átján ára reynslu í vefmálum, aðallega hjá hinu opinbera þar sem ég var lengst af hjá Reykjavíkurborg þar sem ég kom að ótal vefverkefnum fyrir öll svið borgarinnar og var m.a vefstjóri hjá Höfuðborgarstofu og Listasafni Reykjavíkur.

Ég er núna komin í kaf í einyrkjalífið og hef sérhæfti mig í aðferðafræði notendamiðaðrar hönnunar þar sem ég brenn sérstaklega fyrir hagsmunum notandans í hinum síkvika og öra vefheimi.

Mikilvægi gervigreindar innan opinberrar þjónustu fer sívaxandi og verður orðin lykilþáttur í að bæta opinbera þjónustu þegar fram líða stundir,

Mitt helsta markmið mitt er að skapa aðgengilegar og fallegar stafrænar lausnir sem einfalda ferla og bæta upplifun notenda.

Viltu dansa tangó með mér?

Kolbrún Kristín Karlsdóttir, stofnandi Senzus

Ef þú hefur einhverjar spurningar, lumar á hugmynd eða ertu í einhverjum pælingum varðandi þinn vef þá endilega vertu í sambandi.

senzus@senzus.is




Teymið

Kolbrún Kristín Karlsdóttir

Stofnandi og framkvæmdastjóri

Jón Tryggvi Sigurþórsson

Vefhönnuður

Scroll to Top